Hafa samband
Figaro ehf · Reykjavík

Figaro ráðgjöf.

Ráðgjöf, greiningar og verðmöt, og tenging við alþjóðlegt fjármálaumhverfi.


Þjónusta Greiningar · Fjármögnun · Miðlun
Samstarfsaðilar Guinness Global Investors
Hvað við gerum

Þrjú afmörkuð svið.

01

Greiningar og verðmöt

Við vinnum fjárhagsgreiningar, viðskiptaáætlanir og verðmöt fyrir eigendur fyrirtækja, stjórnir, kaupendur og fjárfesta. Greiningar byggjast á bestu forsendum á hverjum tíma, íslenskum markaðsaðstæðum og raunhæfu mati á rekstri, sjóðstreymi og virði fyrirtækja.

Algeng verkefni

  • Verðmöt og fjárhagsgreiningar fyrir eigendur
  • Mat á fyrirtækjum vegna kaupa eða samruna
  • Viðskiptaáætlanir vegna fjármögnunar
02

Fjármögnun

Við styðjum fyrirtæki og eigendur í fjármögnunarferlum, hvort sem um er að ræða eiginfjármögnun, lánsfjármögnun eða blandaða fjármögnun. Aðstoðin nær meðal annars til undirbúnings, fjárfestakynninga og samskipta við banka, sjóði og fjárfesta.

Algeng verkefni

  • Fyrirtæki í fjármögnunarferli
  • Eigendur í viðræðum við banka eða fjárfesta
  • Endurfjármögnun eða endurskipulagning skulda
03

Miðlun

Figaro aðstoðar innlenda og erlenda aðila við að byggja upp tengsl á íslenskum fjármálamarkaði. Þjónustan getur meðal annars falið í sér greiningu á markaðsaðstæðum, undirbúning kynninga, skipulagningu funda og eftirfylgni gagnvart fagfjárfestum og stofnanafjárfestum.

Algeng verkefni

  • Erlendir aðilar með áhuga á íslenskum markaði
  • Sjóðastýringaraðilar sem vilja kynna sig fyrir íslenskum stofnanafjárfestum

“Never invest in a business you cannot understand.”

— Warren Buffett